Gamliprjón.
það var og. orðin 27 ára og enn ekkert bloggað á nýjum aldri. kominn tími til að bæta úr því.
ég prjónaði sumsé afskaplega flókna peysu á Palla um daginn. Hún var með ótal köðlum og það fjölbreytilegum, ég hélt ég myndi bíða varanlegt heilsutjón af prjónaskapnum. Sá fyrir mér samankrepptar krumlur og kókflöskubotnagleraugu sem afleiðingar af stykkinu. En eins og við vitum jú öll þá eru það náttúrlega langmest gefandi verkefnin, þau sem fá mann til að óttast um velferð manns. Bestu verkefnin af öllum eru svo þau sem fá mann til að óttast ekki aðeins um eigin velferð, heldur einnig um fjölskyldu og vini, og bara heimsmyndina eins og maður sér hana. Bestu prjónaverkefnin eru þau sem fá mann til að gruna að heimur manns sé fallvaltur eins og hið óheyrilega flókna kaðlamunstur, að heimurinn sé eitthvað sem maður hefur eytt ómældum tíma og erfiði í að koma sér upp en svo þurfi ekki meir en eina brugðna lykkju á röngum stað til að allt rakni upp og verði að rjúkandi flækju.
Nú er ég ekki að segja að þessi peysa hafi verið svona heimsmyndarskekjandi verkefni, en ég leyfi mér að fullyrða að ég hafi verið óvenju píreyg og hokin í nokkra daga eftir að hafa böðlast kvöld eftir kvöld með kaðlanálina fyrir framan Taggart (sem hefur enn ekki náð sér á strik að nýju eftir prjónamorðaþáttinn góða. þátturinn í gær var um einhver sækó fótboltamannamorðingja. ég meina, í fullri einlægni, hver hefur áhuga á slíku?)
Svo kom að því, peysan búin, nema náttúrulega að ganga frá endum og það, Palli klæddist henni, og viti menn. Hún var eins og á tíu ára. Allt þetta erfiði, allur þessi ótti, og til hvers? Enn á ný, og ekki í fyrsta skiptið,eins og áður hefur komið fram á þessu bloggi, þurfti ég að rekja þessa peysu upp í frumeindir sínar.Eftir þessa atburði, sem áttu sér stað fyrir u.þ.b. mánuði síðan, lenti ég í skelfilegu prjónafönki. Mig einfaldlega langaði ekki að prjóna neitt, ekki einu sinni eyrnaflipahúfu, eins og slíkar eru nú hressandi. Ekki bætti úr skák að fjárhagurinn hefur ekki verið sem bestur upp á síðkastið og sá litli peningur sem ég átti til að eyða í vitleysu fór nokkurnveginn allur í garnið handa Palla. ég hef því ekki verið neitt sérlega framleiðin upp á síðkastið, heldur hef bara notast við garn sem ég fann inni á heimilinu, afganga og annað tilfallandi. Prjónaði mér bleika peysu úr garni sem ég hef átt í mörg ár og alltaf prjónað vonlaus dæmi úr sem voru ekki til neins nýtileg nema sem æfing í hraðaupprakningum. Bleika peysan var svo rakin upp í snarhasti snögglega eftir að hún kom í heiminn í sinni fjórðu birtingarmynd. Hún var bara einhvernvegin of, ég veit ekki, einföld. Enginn pirringur í henni fólginn. Bleika garnið er nú á góðri leið með að skríða saman í fimmta sinn, í þetta skiptið sem: Bleik Peysa. Sjáum hvernig fer, leyfi mér þó á þessum tímapunkti að spá snögglegri upprakningu um miðjan maímánuð. Svo afkastaði ég smábarnasokkum á hina nýskírðu maríu og nokkrum fullorðinssokkum á sjálfa mig. En hef sumsé vaðið dimman prjónadal undanfarið.
En nú er allt á uppleið, ég er aftur byrjuð á peysunni hans Palla, og hef lært af reynslunni: ég notast við stærri uppskrift í þetta skiptið, og ekki nóg með það, heldur ætla ég að fá hann til að máta svona öðru hvoru. Skynsamlegt, ekki satt? Já, ég er bara bjartsýn á framtíðina, ég held svei mér þá að ég sé á leiðinni uppúr prjónafönkinu. Nema náttúrulega þetta með bleika garnið. En ég er tiltölulega róleg yfir því. Ég held að ástæðan fyrir því að bleika garnið kom inn í líf mitt hafi verið sú að kenna mér að óttast ekki að rekja upp. Bleika garnið verður líklega aldrei neitt annað en garn til upprakningar, en það er bara allt í lagi, það hefur þá allavega náð að uppfylla sitt garnkarma.
Eníveis, fyrst það er ekki húsið á sléttunni í kvöld (látið víkja fyrir íþróttum, einum markhópi algerlega fórnað fyrir hinn. ég er viss um að ekki ein einasta manneskja sem hefði horft á húsið muni horfa á handbolta. ég held að þessir tveir áhorfendahópar skarist ekki á nokkurn hátt), þá verð ég víst að halda áfram að læra. Svei.

2 Comments:
At 4:05 PM,
Halla said…
Já, sei,sei. Þú ert hörkudugleg frænka að vera endalaust að prjóna peysur sem þú svo rekur upp ;o) Ég gerði góða tilraun við hælaprjónið um daginn, eftir nokkrar prufur gafst ég upp og vona bara núna að litla barnið mitt fái nú eina góða sokka frá þér í sængurgjöf ;o)
Já taggart, ég sá bara endirinn á þessari brjáluðu fótbolta-Ömmu.
Þið hafið þó alltaf skemmtilegu nágranna ykkar sem búa hinumegin við götuna til að horfa á, ef ekkert er í imbanum hehe..
Hilsen frá jótunum
At 12:22 AM,
Hrólfur S. said…
verulega spennandi ad fylgjast med thér!
persónulega hefdi ég gefid einhverju barni peysuna og kaupt nýtt garn
Post a Comment
<< Home